top of page

PRIMKAUP Í DAGSKRÁ SUÐURLANDS

SMELLTU Á MYNDINA TIL AÐ SJÁ GREININA Á VEFSÍÐU DAGSKRÁRINNAR:

SMELLTU HÉR: DAGSKRÁIN

HÉR MÁ LESA GREININA:

"Primkaup ehf. er nýtt fyrirtæki með aðsetur í Hveragerði. Eigendur fyrirtækisins eru Bárður og Perlynda Gunnarsson. Primkaup er umboðsaðili fyrir svissneska vörumerkið Ceracoat Ceramic, en þær vörur eru nokkuð nýstárlegar og byggjast á svokallaðri nanótækni. Um er að ræða efni á vökvaformi sem er úðað eða borið á yfirborð hluta, til að minnka þrif og auka endingu eigna. Vörurnar eru ætlaðar almennum neytandum. Eftir slíka nanóhjúpun, sem er afar endingargóð, verður yfirborðið óhreininda- og vökvafælið. Á þennan hátt má verja alla mögulega hluti og lengja líftíma þeirra, en þeir gætu verið leðurvörur, speglar, rúður, flísar, baðvaskar, klósett, fatnaður, skór, tölvur, símar, skotvopn, steinveggir, svo eitthvað sé nefnt.

„Ef þið t.d. hefðuð hjúpað ykkar fínustu föt og helltuð yfir ykkur rauðvíni, væri enginn skaði skeður, því vökvinn einfaldega perlaðist af yfirborði þeirra,“ sagði Bárður.

„Primkaup selur einnig vélvörn sem myndar nanóhjúp í vél- og gírbúnaði gegn núningi og sliti, sem dregur úr eldsneytiseyðslu, hitamyndun, olíunotkun, hávaða, útblæstri og eykur afköst, afl og endingu vélar. Ceracoat Ceramic vélvörnin verndar vélar líka í kaldstarti og smurningarskorti.“

Bárður sagði að Primkaup byði líka upp á afar áhrifaríkan lykteyðir, sem eyðir allri ólykt sem myndast af lífrænum efnum. Hann má nota á allt yfirborð, sem og á teppi og vefnaðarvörur, og er tilvalinn á bletti þar sem gæludýr hafa gert þarfir sínar.

Kjörorð Primkaups er hjúpun í stað hreingerninga, því draga má verulega úr hefðbundnum þrifum og notkun hreinsiefna með Ceracoat nanóhjúpun. Þess má og geta að varnarhjúpurinn er ósýnilegur, algjörlega umhverfisvænn, hefur engin áhrif á matvæli og er skaðlaus líkamanum.

„Nanótækni gæti vissulega verið næsta skref mannsins inn í framtíðina. Hún er að ryðja sér til rúms á flestum sviðum vöruframleiðslu. Hún býr yfir óþrjótandi möguleikum og á örugglega eftir að skipa stóran sess í margskonar tækniþróun,“ sagði Bárður

Primkaup rekur vefverslunina primkaup.is á netinu, en þar má kynna sér vörurnar betur og skoða myndbönd sem sýna virknina."

Valdir bloggpistlar
Nýjustu bloggpistlar
Allir bloggpistlar
Leita eftir lykilorðum
No tags yet.
Fylgstu með okkur
  • Facebook Basic Square
bottom of page