top of page
CERACOAT CERAMIC MÓTORHJÓLAVÖRN, 200 ML

MÓTORHJÓLAVÖRN

kr6,799.00Price
  • Alhliðavörn fyrir mótorhjólið (fyrir járn, gler, króm, plast, trefjar). Hana má nota á yfirbyggingu, hjólabúnað, eldsneytistank, spegla, vindgler og hjálm. Hún er vörn gegn hverskyns vökva og óhreinindum. Hinn þunni Ceracoat nanóhjúpur ver allt mótorhjólið gegn óhreinindum, regni, snjó, bremsuryki, fugladriti, flugnaóþrifum, útblástursmengun, sólarljósi og smágrýti og viðheldur gljá hjólsins í langan tíma. Hún hreinsar, hjúpar, ver og myndar mjúkan gljá á yfirborð hjólsins. Eftir Ceracoat meðferð þarf ekki lengur að nota hreinsiefni. Nanóhjúpurinn er ósýnilegur á plexiglerhlífum hjálma og á öðru polykolefnis-yfirborði, eins og ferðavögnum og bílljósum, sem verður til þess að vatn og óhreinindi loðir síður við yfirborðið. Vertu öruggur á hjólinu í öllum veðrum!

    CERACOAT SPARAR TÍMA OG PENINGA!

    NOTKUN:

    Þrífa þarf mestu óhreinindin og bíða þess að hjólið verði þurrt. Hrista skal ílátið vel fyrir notkun. Hella skal litlu magni af Ceracoat efninu í þurran rakadrægan klút og bera á yfirborðið með því að strjúka í hringi. Gljálaus hjúpur myndast á yfirborðinu sem þarf að bíða eftir að þorni. Óþarfi er að nota of mikið af efninu. Fyrir meðalstórt hjól er nóg að nota um 1/4 af ílátinu. Strjúka skal gljálausa hjúpinn í burtu eftir um 2-3 mínútur, þar til yfirborðið verður mjúkt og afar skínandi, líkt og spegill. (aðeins þarf að nota lítið magn) - Hægt er að hjúpa yfirborð hjólsins nokkrum sinnum, til að það verði mýkra og gljáinn jafnvel enn meiri. Varnarkápan endist í afar langan tíma.

    ÞRIF EFTIR CERACOAT MEÐFERÐ

    Nóg er að nota rakan klút til að hreinsa hjólið. Strjúka skal óhreinindin í burtu og pússa fram gljáann.Engin þörf er á að nota hreinsiefni eða sápu lengur.Regnvatnið mun þyrlast af yfirborðinu og hreinsa mótorhjólið!

bottom of page